Dagskrá fyrir nemendur
Náttúruskóli Reykjavíkur býður upp á útikennslu fyrir grunnskólanemendur á grænum svæðum borgarinnar í samvinnu við ýmsa aðila.
Markmið
Dagskrá fyrir nemendur á vegum Náttúruskólans er öllum grunn- og leikskólum borgarinnar að kostnaðarlausu. Skólar greiða fyrir flutning nemenda sinna og kennara til og frá kennslustað þar sem verkefnisstjóri Náttúruskólans tekur á móti hópnum. Verkefnisstjóri Náttúruskóla Reykjavíkur sér um fræðsluna en ætlast er til að kennari fylgi hópnum, taki þátt í vinnunni og sé nemendum innan handar.
Nemendur koma sjálfir með nesti en Náttúruskólinn býður upp á heita hressingu í hléi.
Dagskrána verður að bóka fyrirfram og tekið er á móti bókunum í síma 411 8535 og í tölvupósti, natturuskoli@reykjavik.is.